Skip to product information
1 af 21

K18

PEPTIDE PREP™ detox shampoo

PEPTIDE PREP™ detox shampoo

Upprunalegt verð 9.100 ISK
Upprunalegt verð Tilboðsverð 9.100 ISK
Tilboð! Uppseld
Frí heimsending á öllum pöntunum yfir 15.000 kr.

Hárheilsa byrjar með eins hreinu hári og hugsast getur. Með hreinum grunni, verður hárliturinn jafnari og liturinn líflegri.
K18 meðferðir skila betri árangri og mótunarvörur virka betur.
PEPTIDE PREP sjampóið var hannað til þess að ná hárinu eins hreinu og mögulegt er, hvort sem leitað er eftir áhrifaríkri hreinsun eða
öflugu detoxi sem hefur ekki áhrif á litinn – og það gerir K18 meðferðir töluvert áhrifaríkari.

Hvað er peptide prep detox sjampó?
Sjampóið inniheldur hráefni sem eru innblásin af húðumhirðu.
Það er litavarið, ásamt því að vera míkródósað af k18 peptíðinu.
Sjampóið nærir hárið á meðan það fjarlægir uppsöfnuð áhreinindi og gefur hárinu hreinan grunn og undirbýr það fyrir frekari meðferðir.

Hvernig virkar peptide prep detox sjampó?
Sjampóið djúphreinsar hár og hársvörð.
Strax eftir fyrsta þvott hefur sjampóið fjarlægt óhreinindi á borð við olíu og málma sem geta safnast upp í hárinu. Þá er átt við 99% af build up, 95% af óþarfa olíu og 76% af kopar.

Ryður brautina: Rannsóknir hafa sýnt að allar meðferðir heppnast betur í hreinu hári. Þar með taldar litameðferðir ásamt keratín, permanent, styrkingar og næringarmeðferðum. Sama er með mótunarvörur. Sjampóið undirbýr hárið fyrir hámarksvirkni K18 maskans.

Leggur grunn að heilbrigðu hári: Formúlan hreinsar hárið á áhrifaríkan hátt meðal annars í vatni sem hefur hátt steinefnainnihald. Sjampóið tæklar algenga málma s.s nickel, cadium, lead, zinc og járn og skilar þannig hárinu hreinu án þess að valda óþægindum í hári og hársverði.

Hvers vegna virkar sjampóið?
Formúlan inniheldur efni sem eru innblásin af húðumhirðu og
hreinsa þannig hárið án þess að þurrka það eða hafa áhrif á fyrrum litameðferð.
Í formúlunni eru 17 innihaldsefni auk K18 peptíðsins. Aktívt kol
(charcoal) dregur í sig skaðleg efni, óþarfa olíur og óhreinindi sem kunna að vera í hári og hársverði.
Salisýlsýra hreinsar olíu sem hefur byggst upp í hársekkjunum
(follicles) án þess að hárið missi nauðsynlegar olíur og lípíð (lipids).
K18 peptíð dregur úr því að hárið tapi próteini í þvotti og heldur
hárinu mjúku, sterku, heilbrigðu og hreinu.

Hvernig á að nota?
Djúhreinsisjampó sem er notað milli venjulegra hárþvotta.

1. Skiptið út fyrir venjuleg sjampó til djúphreinsunar einu sinni í
viku eða eins og þörf er fyrir.
2. Nuddið vel hár og hársvörð.
3. Skolið vel.
4. Endurtakið eftir þörfum.

Ilmur:
Sítrus

 

Klínískar upplýsingar

Color safe

Fjarlægir 99% af buildup eftir aðeins einn þvott.
Fjarlægir 96% af óþarfa olíu eftir aðeins einn þvott.
Dregur úr 76% af kopar sem finnst í hári eftir aðeins einn þvott.
Ekki ofnæmisvaldandi, prófað af húðsjúkdómalæknum (50 subject
RIPT)
*
3.8-4.2 pH gildi sem hjálpar að viðhalda lit og þurrkar ekki hárið né
hársvörðin.

INNIHALDSLISTI
Water (Aqua) (Eau), Sodium C14-16 Olefin Sulfonate,
Cocamidopropyl Hydroxysultaine, Salicylic Acid, Charcoal
Powder, sh-Oligopeptide-78, Panthenol, Glycerin, Sodium
Phytate, GuarHydroxypropyltrimonium Chloride, Caprylyl Glycol,
Caprylhydroxamic Acid, Citric Acid,
Potassium Hydroxide, Sodium Hydroxide, Fragrance (Parfum),
Benzyl
Salicylate, Limonene.

LAUST VIÐ:
Sulfates, parabens, phthalates, lilial, silicones, artificial colors, sodium, chloride, formaldehyde, and formaldehyde donors. Vegan and cruelty-free.

 

Nánari upplýsingar um vöru
1 af 4